Sumarið skuldar okkur góða daga
Eigum við ekki bara að segja það eins og er. Þetta sumar hefur verið... blautt.

Við höfum horft út um gluggann og hugsað "kannski á morgun" oftar en við kærum okkur um. Grillað minna, setið minna úti og frestað göngutúrum, hjólatúrum og öllum þessum litlu hlutum sem gera sumarið að sumri.
En það einstaka við íslenskt sumar er að maður veit aldrei hvenær góðu dagarnir mæta. En ef við ætlum að bíða eftir veðrinu er ekki á vísan að róa. Við verðum því að búa þá til.
Þess vegna er Frímó komið aftur
Í dag og fram á miðnætti á miðvikjudag bíða þín 30 frímínútur í Hopp appinu. Veldu einfaldlega 30 frímínútna passann sem greiðslumáta áður en þú byrjar ferðina og njóttu.
Ekki hugsa of mikið. Hoppaðu bara. Niður að sjó. Skoðaðu nýtt hverfi. Fáðu þér ís!
Eða farðu hring um borgina án þess að hafa neinn sérstakan áfangastað. Því stundum er ferðin sjálf tilgangurinn.
Finndu vindinn í hárinu og frelsið hlaða þig orku
Frelsið sem fylgir því að þjóta um borgina er ákveðin tilfinning sem flest okkar þekkja. Vindurinn í hárið. Smá úði eða mögulega sólin í andlitinu. Borgin lifnar við og í nokkrar mínútur gleymir þú verkefnalistanum og öllu sem bíður þegar heim er komið. Dagurinn er allt í einu orðinn góður.
Kannski er það frelsið sem við vorum svo góð í að finna sem krakkar. Við þurftum enga sérstaka ástæðu til að fara út. Við fórum bara!
Kannski þurfum við ekki heldur alltaf ástæðu í dag, kannski duga bara 30 frímínútur.
Við sjáumst úti 💚
Read more
10.03.2026•News | Stundum má ferðin vera skemmtileg líka |