NÝTT hjá Hopp - Bókaðu Hopp leigubíl fyrirfram
Morgunflug, mikilvægur fundur eða einfaldlega þétt dagskrá? Haf þú ekki áhyggjur af því.

Við hjá Hopp erum alltaf að leita leiða til að gera ferðina þína einfaldari og þægilegri. Þess vegna erum við spennt að kynna nýjung í Hopp appinu en Nú getur þú bókað leigubíl fyrirfram og valið nákvæmlega hvenær þú vilt láta sækja þig.
Þú velur tímann, við sjáum um ferðina!
Hvort sem þú þarft að mæta út á flugvöll eldsnemma, ert á leið í mikilvægan fund eða vilt einfaldlega skipuleggja daginn betur, þá getur þú nú bókað Hopp leigubíl allt að þremur dögum fram í tímann.
Engin þörf á að muna eftir að panta bílinn á síðustu stundu. Þú getur gengið frá bókuninni þegar þér hentar og tékkað það af listanum.
Hvernig virkar þetta?
Það er einfalt að bóka leigubíl fyrirfram í Hopp appinu:
Opnaðu Hopp appið og veldu TAXI
Sláðu inn hvar þú vilt láta sækja þig og hvert ferðinni er heitið.
Smelltu á "Sækja: sem fyrst" og veldu dagsetningu og tíma.
Staðfestu valið og bókaðu ferðina!

Þú getur bókað ferð frá einni klukkustund fyrirfram og allt að þremur dögum fram í tímann.

Minni fyrirhöfn, meiri þægindi
Við vitum að tíminn þinn er dýrmætur. Með fyrirfram bókunum viljum við gera þér enn auðveldara að ferðast á þínum forsendum, hvort sem það er snemma morguns, um miðjan dag eða seint um kvöld.
Nýjungin er þegar komin í Hopp appið svo þú getur strax prófað að bóka næstu leigubílaferð fyrirfram!
Read more
09.10.2026•News | 11,5 milljónir ferða, rúmlega 23 milljónir kílómetra og ótal ævintýrum síðar fagnar Hopp Reykjavík 7 ára afmæli! | |
21.08.2026•News | Léttum á umferðinni og sleppum bílastæðaveseni.. | |
11.08.2026•News | Miðvikudaginn 12. ágúst verður almyrkvi á Íslandi og búist er við miklum fjölda fólks á ferðinni á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. |