Persónuverndarstefna

Persónuverndarstefna Hopp

1. Almennt


Persónuvernd þín skiptir Hopp miklu máli. Stefna þessi tekur til persónuupplýsinga hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum sambærilegum hætti. Stefnan tekur til skráningar, vörslu og vinnslu á þeim persónuupplýsingum sem falla undir stefnuna. Stefnan er aðgengileg á heimasíðu Hopp Mobility ehf.


2. Persónuverndarlöggjöf


Um meðferð persónuupplýsinga gilda lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma, sem og viðkomandi samnings um Evrópska efnahagssvæðið. Lögin gilda m.a. um vinnslu, vörslu og miðlun persónuupplýsinga.


3. Ábyrgð


Hopp ber ábyrgð á skráningu persónuupplýsinga og meðferð þeirra upplýsinga í starfsemi sinni. Hopp Mobility ehf., er heimilt að nýta þær persónuupplýsingar sem þú veitir fyrirtækinu. Hægt er að hafa samband við okkur vegna persónuverndarstefnu okkar eða í þeim tilgangi að kvarta yfir mögulegu broti á persónuverndarlögum með því að senda okkur tölvupóst á hopp@hopp.bike.


4. Söfnun og notkun


Við söfnum og varðveitum ýmsar persónuupplýsingar um viðskiptavini okkar, sem listaðar eru að neðan. Þessum upplýsingum söfnum við til þess að við getum veitt þá þjónustu sem óskað hefur verið eftir.

Ef þú ert í viðskiptum hjá okkur söfnum við saman og höldum utan um upplýsingar sem tengjast viðskiptasögu þinni. Þessum upplýsingum söfnum við til þess að geta veitt þér yfirsýn yfir viðskipti þín og til þess að við getum boðið þér persónulegri þjónustu.

Ef þú vilt vera í tengslum við okkur og fá upplýsingar (s.s. rafrænar tilkynningar eða meldingar á samfélagsmiðlum) frá okkur með reglubundnu millibili ert þú beðinn um að veita okkur nauðsynlegar upplýsingar. Þetta er alfarið undir þínu vali komið.

Stundum óskum við eftir því að þú veitir okkur viðbótarupplýsingar um þig. Það eru upplýsingar sem við óskum eftir því við teljum þær geta hjálpað okkur að veita þér betri þjónustu. Þú þarft aldrei að veita slíkar upplýsingar nema þú kjósir það.

Þegar þú notar vefviðmót okkar söfnum við jafnframt persónuupplýsingum með vefkökum (e. cookies), IP-tölum og öðrum upplýsingum tengdum tækinu sem þú notar (s.s. gerð vélbúnaðar, útgáfu stýrikerfis o.þ.h.). Þú getur valið hvort þú kýst að gefa okkur þessar upplýsingar.

Samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd og á grundvelli samþykkis þíns getum við og þjónustuveitendur (sem gætu komið fram fyrir hönd fyrirtækisins) safnað eftirfarandi persónuupplýsingum um þig:

  • Nafni þínu, kennitölu (eða fæðingardegi og -ári), heimilisfangi, símanúmeri og tölvupóstfangi.

  • Kreditkortanúmeri, debetkortanúmer, reikningsupplýsingar eða aðrar bankatengdar upplýsingar.

  • Viðskiptasögu þína hjá okkur, þ. á m. hve oft og hve lengi í senn þú hefur leigt hlaupahjól af okkur, hvar þú hefur ekið því og hvar þú ert staðsett/ur hverju sinni.

  • Samskipti sem þú velur að eiga við okkur, s.s. tölvupóstar, skilaboð send í gegnum vefviðmót, hljóðrituð símtöl, bréf eða önnur samskipti.

  • Greiðsluupplýsingum – s.s. dagsetningum móttekinna greiðslna.

  • Upplýsingum um notkun þína á appi okkar eða heimasíðu. Þessar upplýsingar innifela m.a. hvenær þú sóttir appið, hve lengi þú notar það, áætlaða staðsetningu þína þegar þú notar það, upplýsingar um tækið sem þú notar til þess að fara inn á appið o.s.frv.

Póstlistar: Ef þú skráir þig á póstlista Hopp munum við vinna með upplýsingar um netfang þitt og eftir tilvikum aðrar upplýsingar sem þú lætur fyrirtækinu í té, svo sem nafn og heimilisfang. Sú vinnsla byggir á samþykki viðskiptavina en þeim er heimilt hvenær sem er að afturkalla samþykkið og afskrá sig af póstlista Hopp.

Markaðssetning: Hopp kann að nýta þær persónuupplýsingar sem þú hefur látið félaginu í té til þess að senda þér tilboð og auglýsingar sem byggja á þessum upplýsingum. Slík vinnsla byggir á upplýstu samþykki viðskiptavinar sem er afturkallanlegt.

Kvartanir og ábendingar: Ef þú sendir okkur ábendingu eða kvörtun mun Hopp vinna með tengiliðaupplýsingar þínar, s.s. nafn og netfang, og efni þeirrar kvörtunar eða ábendingar sem þú hefur kosið að koma á framfæri.Við kunnum því að nota persónuupplýsingar þínar til þess að:

  • Veita þér þá þjónustu eða vörur sem þú hefur óskað eftir.

  • Vinna úr þeim beiðnum eða athugasemdum sem þú hefur komið á framfæri til okkar.

  • Bjóða þér tiltekna þjónustu á tilteknum kjörum.

  • Upplýsa þig um nýjar vörur og/eða þjónustur.

  • Senda þér reikninga vegna viðskipta við okkur eða rukka þig fyrir þjónustu-og/eða vörukaup.

  • Átta okkur á því hvernig þú nýtir þér þjónustu okkar en þannig getum við betur þróað þjónustu-og vöruúrval okkar áfram.

  • Svara spurningum sem þú beinir til okkar.


5. Miðlun


Við deilum persónuupplýsingum einungis með þriðja aðila skv. vinnslusamningi þar sem kveðið er á um meðferð og öryggi persónuupplýsinga, nema í þeim tilvikum þar sem lagaskylda kveður á um annað. Ef upp koma aðstæður þar sem grunur er um sviksamlega eða ólögmæta háttsemi munum við deila með viðeigandi aðilum persónuupplýsingum sem þýðingu kunna að hafa í þeim tilgangi að vernda hagsmuni okkar, hagsmuni þína og/eða hagsmuni annarra viðskiptavina okkar.

Komi til þess að við sameinumst öðru félagi þá kunna upplýsingarnar að flytjast yfir til nýs félags.


6. Þriðju aðilar


Persónuverndarstefnan nær ekki til söfnunar eða vinnslu þriðja aðila á persónulegum upplýsingum þínum þar sem við höfum enga stjórn á né berum ábyrgð á notkun, birtingu eða öðru því sem þeir kunna að gera með upplýsingar þínar. Við hvetjum þig því til að kynna þér persónuverndarstefnu þriðju aðila, þ. á m. vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað á okkar vefsíðu, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Apple, Google og Microsoft ásamt persónuverndarstefnu þeirrar greiðsluþjónustu sem þú kýst að nota.


7. Verndun


Hopp Mobility ehf. leggur mikla áherslu á að vernda allar persónuupplýsingar og hefur því yfir að skipa innra eftirlitskerfi sem tryggir að ávallt skulu gerðar viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir.

Við munum tilkynna þér án ótilhlýðilegrar tafar ef upp kemur öryggisbrot er varðar persónuupplýsingarnar þínar og sem getur haft í för með sér mikla áhættu fyrir þig. Með öryggisbroti í framangreindum skilningi er átt við brot á öryggi sem leiðir til óviljandi eða ólögmætrar eyðingar persónuupplýsinga eða að þær breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi.

Athygli þín er þó vakin á því að þú berð ábyrgð á þeim persónuupplýsingum, t.d. nafni, kennitölu og mynd, sem þú kýst að deila eða senda á almennum vettvangi t.d. í gegnum TripAdvisor, spjallrás eða samfélagsmiðlasíðum Hopp.

Okkar vefsíður nota SSL skilríki sem þýðir að gagnaflutningur til og frá síðunum er dulkóðaður. SSL skilríki varna því að þriðji aðili komist yfir þau gögn sem eru send í gegn um vefinn til dæmis þegar sendar eru fyrirspurnir og þjónustupantanir af vefsvæðinu.

Hopp bendir að lokum á að gagnaflutningur á internetinu er aldrei fullkomlega öruggur. Þér er því bent á að láta okkur umsvifalaust vita ef þú telur líkur á því að tilteknar upplýsingar sem þú hefur gefið okkur séu í hættu.


8. Varðveisla


Við munum varðveita viðskiptasögu þína í allt að 4 ár nema lög krefjist eða leyfi lengri varðveislutíma. Ef ekki er lengur þörf á upplýsingunum eða lög kveða á um eyðingu þeirra, verða upplýsingarnar gerðar ópersónugreinanlegar og/eða þeim eytt.


9. Réttindi þín


Þú átt rétt á og getur óskað eftir að Hopp veiti þér upplýsingar um þær persónuupplýsingar sem fyrirtækið býr yfir sem og um vinnslu og meðferð upplýsinga um þig.

Þú átt rétt á því í vissum tilvikum að persónuupplýsingar um þig séu leiðréttar eða þeim eytt, enda sé ekki lengur ástæða til þess að við geymum þær.

Við munum taka beiðnir þínar skv. framasögðu til greina og þér afhentar upplýsingarnar, þær leiðréttar eða þeim eytt (allt eftir því sem við á) innan 40 daga, þó með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra setja slíku, þ.m.t. viðskiptaleyndarmál og hugverkaréttindi. Þér verður tilkynnt og gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verða við beiðninni að fullu, eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar.


10. Breytingar


Persónuverndarstefnan er endurskoðuð reglulega og kann því að taka breytingum. Þér er því ráðlagt að kynna þér persónuverndarstefnuna reglulega en breytingar á stefnunni öðlast gildi við birtingu á heimasíðu fyrirtækisins; https://hopp.bike.


11. Úrræði vegna ætlaðra brota


Þú hefur rétt á því að beina kvörtun þinni vegna ætlaðs brots á lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, lög nr. 90/2018, til Persónuverndar í samræmi fyrirmæli laganna.


Þessi persónuverndarstefna var sett þann 04.09.2019.