Hoppaðu á menningarnótt!

Léttum á umferðinni og sleppum bílastæðaveseni..

Menningarnótt er einn stærsti viðburður ársins í miðborg Reykjavíkur og við ætlum að sjálfsögðu að hoppa með ykkur í gleðina 💚

Vegna hátíðarhaldanna verða umfangsmiklar götulokanir í miðborginni og götur innan rauða svæðisins verða lokaðar fyrir Hopp rafskútum á meðan á Menningarnótt stendur.

Til að gera ferðina niður í bæ eins einfalda og þægilega og hægt er höfum við sett upp sérstök HoppSpot afsláttarsvæði í kringum miðborgina. Þar getur þú lagt Hopp rafskútum eða deilibílum og fengið 10% afslátt af ferðinni í leiðinni.

🛴 HoppSpot fyrir rafskútur

📍 Háskóli Íslands
📍 BSÍ
📍 Skúlagata 4 – Sjávarútvegsráðuneytið
📍 Hverfisgata 105
📍 Tækniskólinn
📍 Vonarstræti

🚗 HoppSpot fyrir deilibíla

📍 Höfði, Félagstún 1
📍 Þjóðarbókhlaðan

Að sjálfsögðu er líka alltaf hægt að leggja hjá okkur á HoppSpot við Hopp Reykjavík, Skúlagötu 13.

Kíktu á kortið áður en þú hoppar

Við mælum með að þú kíkir á kortið í Hopp appinu áður en þú leggur af stað, þar sem þar sérðu lokunarsvæði og HoppSpot svæðin hverju sinni.

Svo er bara að skilja bílinn eftir, hoppa niður í bæ og njóta alls þess sem Menningarnótt hefur upp á að bjóða.

Minni mengun, meiri menning 💚

Read more

16.10.2026•News

NÝTT hjá Hopp - Bókaðu Hopp leigubíl fyrirfram

Morgunflug, mikilvægur fundur eða einfaldlega þétt dagskrá? Haf þú ekki áhyggjur af því.

09.10.2026•News

7 ár saman og við erum rétt að byrja!

11,5 milljónir ferða, rúmlega 23 milljónir kílómetra og ótal ævintýrum síðar fagnar Hopp Reykjavík 7 ára afmæli!

11.08.2026•News

Hoppaðu á almyrkvann: svona komumst við betur leiðar okkar

Miðvikudaginn 12. ágúst verður almyrkvi á Íslandi og búist er við miklum fjölda fólks á ferðinni á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í Reykjavík og á Seltjarnarnesi.