Bíllinn á planinu kostar meira en þú heldur
Skoðaðu nýju reiknivélina okkar!

Ég hef lengi haft áhuga á því hvað það kostar okkur í raun og veru að eiga bíl, mest vegna þess að mér finnst alltaf svo dýrt að láta laga bíla og ég vildi gjarnan nota þann pening í eitthvað annað. Við vitum yfirleitt nokkurn veginn hvað við borgum í tryggingar, eldsneyti og viðgerðir, en fæst okkar hafa tekið saman allan kostnaðinn við bíleign. Þar vegur verðrýrnunin oft þungt, þótt hún sjáist aldrei sem sérstök færsla í heimabankanum. Bíllinn stendur úti á bílaplani mest allan tímann og lækkar í verði á meðan við sitjum inni og horfum á Netflix.
Á sama tíma erum við frekar meðvituð um hvað aðrir samgöngukostir kosta. Við vitum, allavega sum, hvað strætómiðinn kostar, hvað við borgum fyrir rafskútu og hvað deilibíllinn rukkar fyrir hverja mínútu. En við höfum oft ekki hugmynd um hvað það kostar okkur á dag að eiga bílinn sem stendur fyrir utan húsið.
Ég ákvað því að búa til reiknivél sem sýnir hvað það kostar að eiga bíl og ber þann kostnað saman við að ferðast með öðrum hætti. Ég fékk Claude, vin minn, til að hjálpa mér að forrita hana. Það er reyndar önnur saga út af fyrir sig að vera farin að búa til heimasíður án þess að kunna að forrita, en hér erum við.
Niðurstöðurnar komu mér töluvert á óvart.
Leyfið mér að kynna til sögunnar Jónu. Hún er 42 ára, býr í Reykjavík, vinnur í miðbænum og á sjö milljóna króna fjölskyldubíl sem hún keyrir um 5.000 kílómetra á ári. Jóna er auðvitað tilbúin persóna, en ég held að við þekkjum öll einhverja týpu eins og hana Jónu mína.

Jóna keypti bílinn því það er þægilegt að eiga bíl. Hún þarf stundum að skutla börnunum, fara í stórinnkaup og heimsækja mömmu sína í Mosó. Hún hefur hins vegar áttað sig á því að bíllinn stendur mest allan tímann fyrir utan húsið. Hún getur vel gengið í vinnuna, hoppað eða hjólað milli staða og notar því bílinn mun minna en hún hélt þegar hún keypti hann. Samt heldur hún áfram að borga fyrir hann alla daga ársins, líka þá daga sem hann hreyfist ekki um millimeter.
Ég reiknaði út fyrir Jónu hvað það myndi kosta hana að sleppa bílnum alveg. Hún ætlar ekki að hætta að snattast um bæinn, enda þarf hún enn að komast í vinnuna, sinna erindum, hitta vini og skutlast uppí Mosó til mömmu. Hún ætlar einfaldlega að nota mismunandi samgöngukosti eftir því hvað hentar hverju sinni.
Í dæminu mínu fer Jóna 14 ferðir á rafskútu á viku, að meðaltali tíu mínútur hverja ferð. Hún notar deilibíl sjö sinnum í viku, að meðaltali í 30 mínútur, og tekur leigubíl tvisvar í viku, að meðaltali í 11 mínútur. Þess á milli gengur hún eða tekur strætó þegar það hentar, þótt strætóferðirnar séu ekki teknar með í þessum tiltekna útreikningi.

Þetta eru samtals 23 ferðir á viku í leigðum farartækjum, svo Jóna er sannarlega ekki búin að dæma sig til stofufangelsis. Hún kemst enn í stórinnkaupin, á fundi og í heimsóknir. Hún þarf bara ekki lengur að eiga farartækið sem hún notar hverju sinni.
Miðað við þessar forsendur kostar þessi samsetning ferða um 888 þúsund krónur á ári, en áætlaður heildarkostnaður við að eiga fjölskyldubílinn hennar Jónu er 2,47 milljónir króna á ári.
Munurinn er tæplega 1,6 milljónir króna á ári, eða um 132 þúsund krónur á mánuði.

Jóna er sem sagt búin að finna mögulegan sparnað sem jafngildir ágætis utanlandsferð fyrir fjölskylduna, myndarlegum viðbótarsparnaði eða ansi mörgum góðum kvöldverðum. Og hún þarf ekki einu sinni að hætta að heimsækja mömmu sína í Mosfellsbæ.
Auðvitað er þetta ekki svona einfalt fyrir alla. Sumir búa þar sem almenningssamgöngur eru takmarkaðar, aðrir þurfa bíl daglega vegna vinnu eða fjölskylduaðstæðna. Og Jóna þyrfti að skoða hvort þessi ferðamynstur og kostnaður við viðbótarferðir, til dæmis með strætó, endurspegli raunverulega hennar þarfir. En ég held að við séum mörg sem höfum aldrei almennilega reiknað dæmið til enda. Við eigum bíl vegna þess að við höfum alltaf átt bíl og lítum á kostnaðinn sem óhjákvæmilegan hluta af heimilisrekstrinum.
Það sem mér finnst sérstaklega áhugavert er að við þurfum ekki endilega að velja á milli þess að eiga bíl og vera algjörlega bíllaus. Fyrir sum heimili gæti verið nóg að fækka bílunum úr tveimur í einn. Önnur gætu komist að með því að það að nota hjól, fæturna til að ganga, deilibíla og leigubíla uppfyllir flestar þeirra þarfir.
Markmiðið með reiknivélinni er ekki að sannfæra alla um að selja bílinn sinn, heldur að gera kostnaðinn sýnilegan. Reikniaðferðirnar eru heldur ekki heilagar eða hafnar yfir vafa. Ég er til í að aðlaga þær og breyta ef betri aðferðir eru til. Hún gerir fólki kleift að breyta forsendunum, velja mismunandi tegundir bíla, stilla árlegan akstur og bera niðurstöðuna saman við aðra samgöngukosti. Þetta er auðvitað áætlun sem byggir á ákveðni nálgun og tilteknum forsendum, ekki nákvæmur útreikningur fyrir hvern einasta bíleiganda.
Ég hvet ykkur til að prófa að setja inn ykkar eigin tölur. Það gæti komið ykkur á óvart hvað bíllinn á planinu er í raun að rukka ykkur fyrir að fá að standa þar
Prófaðu reiknivélina hér.
Höfundur greinar er Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur
Read more
16.10.2026•News | Morgunflug, mikilvægur fundur eða einfaldlega þétt dagskrá? Haf þú ekki áhyggjur af því. | |
09.10.2026•News | 11,5 milljónir ferða, rúmlega 23 milljónir kílómetra og ótal ævintýrum síðar fagnar Hopp Reykjavík 7 ára afmæli! | |
21.08.2026•News | Léttum á umferðinni og sleppum bílastæðaveseni.. |