7 ár saman og við erum rétt að byrja!
11,5 milljónir ferða, rúmlega 23 milljónir kílómetra og ótal ævintýrum síðar fagnar Hopp Reykjavík 7 ára afmæli!

Það er ótrúlegt að hugsa til þess að sjö ár séu liðin frá því að íslenskir frumkvöðlar lögðu af stað í leiðangur og Hopp rafhlaupahjólin birtust á götum Reykjavíkur. Þar sem ný og spennandi samgöngulausn hefur síðan orðið að sjálfsögðum hluta af samgöngum borgarbúa.
Á þessum sjö árum höfum við vaxið, lært, þróast og ekki síst fengið að vera með ykkur í milljónum ferða. Hvort sem það er stutt Hopp í vinnuna, ferð á milli funda, leigubíla heimferð eftir skemmtilegt kvöld eða deilibíll í helgarævintýrið, þá er markmiðið alltaf það að gera fólki auðveldara að komast leiðar sinnar.

Frá árinu 2019 hafa notendur Hopp í Reykjavík farið í samtals 11.535.930 ferðir á rafhlaupahjólum og deilibílum.
Samanlagt hafa Hopp farartækin ferðast 23.185.080 kílómetra en til að setja þá tölu í samhengi jafngildir það því að ferðast um það bil 579 sinnum í kringum jörðina!
Það eru ansi margir kílómetrar, ansi margar ferðir og vonandi ansi mörg bros á leiðinni.
Og það besta? Við erum hvergi nærri hætt!
Grænni samgöngur, eina ferð í einu.
Við hjá Hopp trúum því að framtíð samgangna felist ekki endilega í því að allir eigi sinn eigin bíl, heldur að fólk hafi raunverulegt val um hvernig það kemst á milli staða.
Stundum er best að ganga.
Stundum að hjóla.
Stundum að taka strætó.
Stundum er einfaldlega hentugast að Hoppa!
Samkvæmt útreikningum okkar hefur notkun Hopp rafhlaupahjóla og deilibíla í Reykjavík skilað áætluðum sparnaði upp á rúmlega 3.125 tonn af CO₂ frá árinu 2019.
Þetta er árangur sem við erum stolt af en hann minnir okkur líka á hversu mikil tækifæri felast í því að gefa fólki fjölbreyttari samgöngukosti.
Hvað ef 20% fleiri myndu Hoppa?
Miðað við sambærilega notkun og sömu forsendur um sparnað gæti CO₂ sparnaðurinn verið um 3.750 tonn og ef notkunin væri 50% meiri? Þá værum við að tala um tæplega 4.688 tonn af CO₂.
Þetta eru einfaldar sviðsmyndir, en þær sýna hvað aukin notkun örflæðisins í samgöngum gæti þýtt.
Heimakær en heimsþekkt!
Þótt Hopp eigi rætur sínar á Íslandi hefur ævintýrið fyrir löngu teygt anga sína út fyrir landsteinana.
Á aðeins sjö árum hefur Hopp vaxið úr íslenskri hugmynd yfir í alþjóðlega samgönguþjónustu sem starfar nú í 70 borgum í 17 löndum, allt frá Miðausturlöndum til Karíbahafsins en við erum ótrúlega stolt af því að íslenskt hugvit hafi náð svona langt og að fá að taka þátt í að móta framtíð borgarsamgangna, bæði hér heima og erlendis.
Frá rafhlaupahjólum yfir í fleiri möguleika..
Hopp snýst í dag um miklu meira en bara rafhlaupahjól.
Með tilkomu leigubílaþjónustunnar og svo 100% rafknúinna deilibíla höfum við haldið áfram að þróa lausnir sem gera fólki kleift að velja þann ferðamáta sem hentar hverju sinni.
Við viljum að það sé auðveldara að lifa án þess að þurfa alltaf að treysta á einkabílinn, ekki vegna þess að bílar séu óþarfir, heldur vegna þess að það þarf ekki alltaf að eiga bíl til að geta notað slíkan og við ætlum að halda áfram að finna nýjar leiðir til að gera samgöngur einfaldari, aðgengilegri og skemmtilegri.
Við erum bara rétt að byrja
Það er eitt að byggja upp fyrirtæki svo er það annað að byggja upp samfélag en við hefðum aldrei komist svona langt án allra þeirra sem hafa valið að Hoppa með okkur síðustu sjö árin.
Okkar innilegustu þakkir til notenda okkar, samstarfsaðila, starfsfólks og allra sem hafa stutt okkur á leiðinni. Takk fyrir hverja einustu ferð, fyrir ábendingarnar, hugmyndirnar, þolinmæðina og traustið.
Síðustu sjö ár hafa verið ævintýri og við erum enn spenntari fyrir því sem fram undan er.
Höldum áfram að skapa grænni, skemmtilegri og betri borg saman!
Til hamingju með 7 ára afmælið kæru Hopparar!
Read more
16.10.2026•News | Morgunflug, mikilvægur fundur eða einfaldlega þétt dagskrá? Haf þú ekki áhyggjur af því. | |
21.08.2026•News | Léttum á umferðinni og sleppum bílastæðaveseni.. | |
11.08.2026•News | Miðvikudaginn 12. ágúst verður almyrkvi á Íslandi og búist er við miklum fjölda fólks á ferðinni á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í Reykjavík og á Seltjarnarnesi. |