Hoppaðu á almyrkvann: svona komumst við betur leiðar okkar
Miðvikudaginn 12. ágúst verður almyrkvi á Íslandi og búist er við miklum fjölda fólks á ferðinni á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í Reykjavík og á Seltjarnarnesi.

Við hjá Hopp viljum gera okkar til að auðvelda fólki að komast leiðar sinnar og höfum því sett upp sérstök söfnunar- og afsláttarsvæði fyrir Hopp rafskútur, auk söfnunarsvæða fyrir Hopp deilibíla í samstarfi við sveitarfélögin.
Markmiðið er að dreifa umferðinni, auðvelda Hopp notendum að finna hentuga staði til að leggja og gera ferðina að og frá vinsælum áhorfs svæðum eins þægilega og hægt er.
Söfnunar- og afsláttarsvæði fyrir rafskútur
Á eftirfarandi stöðum verða sérstök söfnunar- og afsláttarsvæði fyrir Hopp rafskútur. Þegar rafskútu er lagt innan merkts afsláttarsvæðis fær notandinn afslátt af ferðinni.
Reykjavík
N1 Ægisíðu
Harpa
Lækjartorg
Ingólfstorg
Háskóli Íslands
Melabúðin
Sæborg við Ægisíðu / Starhaga
Hlemmur
Klapparstígur
Seltjarnarnes
Golfklúbbur Seltjarnarness
Eiðistorg / Hagkaup
Grótta – við heita pottinn
Sundlaug Seltjarnarness
Garðabær
Ásgarður
Álftanes
Álftaneslaug
Finndu bláa % merkið í Hopp appinu
Auðveldasta leiðin til að finna svæðin er að opna kortið í Hopp appinu og leita að bláa % merkinu.
Þar sérðu nákvæma staðsetningu afsláttarsvæðanna. Leggir þú rafskútunni innan merkts svæðis færðu afslátt af ferðinni.
Við mælum með að skoða kortið áður en lagt er af stað og aftur þegar komið er á áfangastað.
Söfnunarsvæði fyrir Hopp deilibíla
Við verðum einnig með sérstök söfnunarsvæði fyrir deilibíla á þremur stöðum:
Vesturbæjarlaug
Háskóli Íslands
Eiðistorg
Þessi svæði eru hugsuð til að auðvelda notendum að skila deilibílum og hjálpa til við að halda Hopp bílunum aðgengilegum á meðan álagið á umferðina er sem mest.
Sýnum tillit í umferðinni
Almyrkvinn verður sögulegur viðburður og ljóst er að margir verða á ferðinni. Því má búast við breytingum á hefðbundnu umferðarmynstri, lokunum og töfum víða.
Við hvetjum öll sem ætla að Hoppa til að fylgjast vel með lokunarpóstum og öðrum merkingum, virða fyrirmæli og sýna öðrum vegfarendum sérstaka tillitssemi.
Gefum okkur góðan tíma, förum varlega og hjálpumst að við að halda umferðinni eins greiðri og öruggri og hægt er.
Svo er bara að finna góðan stað, líta upp og njóta ferðarinnar 💚
Read more
21.08.2026•News | Léttum á umferðinni og sleppum bílastæðaveseni.. | |
13.07.2026•News | Eigum við ekki bara að segja það eins og er. Þetta sumar hefur verið... blautt. | |
10.03.2026•News | Stundum má ferðin vera skemmtileg líka |