Traust, tækni og smá karaoke í leiðinni
Stundum má ferðin vera skemmtileg líka

Undanfarið hefur verið aukin umræða um breytingar á leigubílamarkaðnum á Íslandi og hvort nýjar reglur muni styrkja traust og öryggi í greininni.
Þetta er mikilvægt samtal.
Öryggi farþega og ökumanna þarf ávallt að vera í fyrirrúmi.
Á sama tíma hefur upplifun fólks af leigubílaferðum tekið miklum breytingum á undanförnum árum, ekki síst með tilkomu snjallforrita og nýrrar tækni sem hefur umbreytt því hvernig fólk ferðast um borgir.
Í dag byggist stór hluti traustsins í nútíma samgönguþjónustu á tækninni sjálfri.
Þegar farþegar panta leigubíl í gegnum Hopp appið geta þeir til dæmis strax séð
Verð ferðarinnar fyrirfram
Hvar bíllinn er staðsettur í rauntíma
Hver ökumaðurinn er
Einkunnir frá öðrum farþegum
Áætlaðan komu- og ferðatíma
Greiðslan fer síðan fram í gegnum appið, sem gerir allt ferlið gagnsætt og rekjanlegt frá upphafi til enda.
Þessi sýnileiki og rekjanleiki bætir við nýju öryggislagi sem áður var ekki til staðar á hefðbundnum leigubílamarkaði.
Betri upplifun fyrir farþega
Markmið okkar hjá Hopp Reykjavík er einfalt:
að gera samgöngur um borgina öruggar, einfaldar, sjálfbærar og aðgengilegar fyrir öll.
Hvort sem um er að ræða rafskútur, deilibíla eða leigubíla snýst þjónustan um að skapa hnökralausa upplifun frá því ferð er pöntuð þar til farþeginn er kominn á áfangastað.
En stundum má ferðin líka vera aðeins skemmtilegri en með nýjum karaoke flota Hopp leigubíla geta farþegar bókstaflega pantað sér bíl og tekið lagið á leiðinni á milli staða.
Það leysir kannski ekki allar reglugerðarumræður, en það getur sannarlega gert ferðina örlítið skemmtilegri.
Borg á hreyfingu
Reykjavík er lifandi borg þar sem fólk er stöðugt á ferðinni í vinnu, á veitingastaði, tónleika, íþróttaviðburði eða einfaldlega bara heim til sín.
Framtíð samgangna í borginni mun byggjast á betri tækni, gagnsæi, öryggi og góðri upplifun fyrir notendur.
Og stundum getur hún líka falið í sér að syngja sig í gegnum bæinn.