Komdu út í Frímó

60 frímínútur fyrir alla hoppara miðvikudaginn 29. apríl.

Komdu út í Frímó

Það var eitthvað sérstakt við frímínúturnar í skólanum í gamla daga. Ég man enn hvernig bjallan hringdi snemma á tíunda áratugnum og allt sprakk út. Enginn hugsaði, við bara hlupum út. Fótboltinn byrjaði sjálfkrafa. Einhverjir fóru í feluleik. Aðrir voru meira kúl, stóðu bara og spjölluðu og gáfu þeim auga sem þau voru skotin í, hlógu, upplifðu augnablikið. Það skipti engu máli hvort það var kalt eða smá rigning. Við fórum út í frímó. 

Á tíunda áratugnum var þetta einfalt. Frímó fylgdi frelsi. Sum tóku sér meira frelsi en önnur og röltu kannski út í sjoppu og keyptu snúð og kókómjólk. Ég er alveg sek um það. 

Í dag er þetta aðeins flóknara. Við erum meira inni. Meira í símanum. Meira föst í rútínu. Þau sem hugsa nú rómantískar nostalgíu hugsanir um níunda og tíunda áratuginn eru orðin miðaldra úthverfa foreldrar og fara sjaldnar út án ástæðu. Og þau sem ólust ekki upp við þetta upplifa kannski aldrei þessa tilfinningu nema einhver búi hana til.

Það er einmitt það sem við ætlum að gera með Frímó.

60 mínútur til að fara út að leika

Miðvikudaginn 29. apríl fá allir notendur Hopp Reykjavíkur 60 frímínútur á rafskútum. Engin flókin skilyrði. Enginn krókur á móti bragði. Bara opna appið, hoppa og njóta ókeypis!

Það er eitthvað við fyrsta alvöru vorilminn í Reykjavík. Sólin hangir aðeins lengur, fólk hættir að flýta sér heim og allt í einu langar manni bara út. Nú hefur þú tækifæri til þess að rúlla þér út og það ókeypis þar sem Hopp Reykjavík ætlar að gefa öllum sínum notendum smá neista inn í sumarið

Frímínúturnar eru virkar í appinu frá miðnætti til miðnættis þann 29. apríl og gilda á allar rafskútur Hopp á höfuðborgarsvæðinu og völdum sérleyfum Hopp út á landi. Þú getur notað þær hvernig sem þú vilt. Eina langa ferð eða nokkrar styttri.

Kannski í vinnuna. Kannski í ísbúð. Kannski bara til að rúnta til þess að hafa gaman.

Af hverju skiptir þetta máli?

Þetta er ekki bara skemmtun. Þetta er líka lýðheilsa.

Við vitum að fólk er of mikið inni. Of kyrrt. Of tengt skjám en of lítið tengt umhverfinu sínu. Smá hressing úti gerir meira en fólk heldur. Hún léttir lund, eykur orku og svo er bara svo gaman að hoppa út. 

Frímó er lítil áminning um þetta. Að það þarf ekki alltaf plan. Stundum er nóg að fara út og sjá hvað gerist.