Nú geturðu auðkennt þig með rafrænu ökuskírteini í Hopp appinu

Hopp er fyrsta fyrirtækið sem innleiðir lausn sem gerir notendum kleift að staðfesta rafræna ökuskírteinið sitt með þessum hætti.

Við hjá Hopp erum stöðugt að leita leiða til að gera samgöngur einfaldari, hraðari og þægilegri. Þess vegna erum við sérstaklega stolt af því að kynna nýja virkni sem gerir notendum kleift að auðkenna sig með rafrænu ökuskírteini beint í gegnum Hopp appið.

Hopp er fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem innleiðir lausn sem gerir notendum kleift að staðfesta rafræna ökuskírteinið sitt með þessum hætti.

Fljótlegra að komast af stað

Til að nota Hopp deilibíla þurfa notendur að staðfesta að þau séu með gilt ökuskírteini en hingað til hefur það krafist þess að hlaða upp myndum eða fara í gegnum handvirkt staðfestingar ferli.

Nú er það orðið mun einfaldara.

Með rafræna ökuskírteininu þínu getur þú auðkennt þig á örfáum sekúndum beint í gegnum appið og verið á ferðinni í næsta Hopp bíl áður en þú veist af. Ekki er það verra að fyrstu 20 mínúturnar eru fríar í hopp bílunum, kíktu í veskið þitt í appinu!

Minni fyrirhöfn, betri upplifun

Markmið okkar er að fjarlægja allar óþarfa hindranir á milli notenda og þjónustunnar. Því færri skref sem þarf að taka, því betri verður upplifunin.

Nýja lausnin:

  • Sparar tíma við skráningu

  • Einfaldar aðgang að Hopp bílunum

  • Eykur öryggi og áreiðanleika auðkenningar

  • Gerir fyrstu upplifun nýrra notenda mun þægilegri

Hluti af stærri vegferð

Þessi nýjung er enn eitt skrefið í áframhaldandi þróun Hopp á Íslandi. Við trúum því að tæknin eigi að vinna fyrir fólkið og gera daglegt líf einfaldara.

Hvort sem þú notar Hopp deilibíla reglulega eða ert að prófa í fyrsta sinn, þá hefur aldrei verið auðveldara að komast undir stýri.

Opnaðu Hopp appið, auðkenndu þig með rafræna ökuskírteininu þínu og hoppaðu af stað.

Við sjáumst á ferðinni!

Read more

28.04.2026Frétt

Komdu út í Frímó

60 frímínútur fyrir alla hoppara miðvikudaginn 29. apríl.