07.04.2026Örflæði

Hopp Reykjavik Hopp Reykjavik

Mátt þú hoppa í vinnunni?

Einfaldaðu vinnu rúntinn. Með Hopp fyrirtækjareikning sleppur þú við kvittanavesen eða endurgreiðslubeiðnir og getur einbeitt þér að því að komast þangað sem þú þarft.

Mátt þú hoppa í vinnunni?

Suma daga er vinnudagurinn þannig krefjandi að umferðin og bílastæðavandi á höfuðborgarsvæðinu ætlar bara alveg að klára mann. Það þarf enginn á því að halda að að bæta við hann kvittanaleit, endrgreiðslubeiðnum og endalausum spurningum um hver borgaði hvað með hvaða korti. Með Hopp fyrirtækjareikningi er allt einfaldlega á einum stað. Fyrirtækið stofnar aðgang, býður starfsfólki inn og heldur utan um ferðirnar á þægilegan hátt. Þetta er lausn sem passar bæði fyrir lítil og stór fyrirtæki og gerir daginn aðeins léttari.

Fljótlegt að byrja og auðvelt að stjórna

Það tekur stutta stund að koma sér af stað. Þú sækir Hopp appið, skráir þig inn, ferð í Veski og býrð til fyrirtækjareikning. Svo bætirðu við upplýsingum um fyrirtækið, virkjar reikninginn með greiðslukorti og býður samstarfsfólki aðgang. Stjórnendur geta síðan stillt reglurnar, til dæmis hvaða ferðamátar eru í boði, hvenær má nota reikninginn og jafnvel hvar. Þannig fær starfsfólkið frelsi til að ferðast en fyrirtækið heldur samt fullri stjórn.

Einn aðgangur fyrir allar vinnuferðir

Segjum að það sé miðvikudagur og þið vinnufélagarnir þurfið að leysa allskonar verkefni. Fundur klukkan ellefu hinum megin í bænum, næsti fundur klukkan tvö í hinum enda borgarinnar og svo þarf að skjótast eftir litlu en mikilvægu gjafakorti í miðbæinn.

Áður fyrr hefði þetta orðið blanda af stressi, eigin greiðslum, kvittunum sem týnast í vösum og “ég sendi þetta bara seinna” pælingum. En núna er þetta einfalt:

  • Elín hoppar á rafskútu á fyrsta fundinn

  • Jón tekur deilibíl til að sækja gjafabréfin í bingóið.

  • Sara pantar leigubíl til að vera snögg og sæt.

    Allt fer í gegnum sama fyrirtækjareikninginn, enginn þarf að borga úr eigin vasa og í lok mánaðarins kemur sameinuð kvittun sjálfkrafa. Vinnuferðirnar urðu ekki bara auðveldari, þær urðu líka skemmtilegri.

Hopp fyrirtækjareikningar virka með öllum ferðamátum sem Hopp býður upp á, þar á meðal rafskútum, deilibílum og leigubílum, eftir staðsetningu. Fyrirtæki fá þannig sveigjanlega samgöngulausn sem eykur þægindi starfsfólks og dregur úr kolefnisspori á vinnutíma. Greiðslukort reikningsins er rukkað fyrir hverja ferð og sameinuð kvittun er send þann 26. hvers mánaðar. Staðfest fyrirtæki geta einnig sótt um að greiða mánaðarlega. 

Ef eitthvað kemur upp er þjónustuverið til staðar í netspjalli í appinu eða á hjalp@hopp.is.