07.11.2025Mobility

Hopp Reykjavik Hopp Reykjavik

Hvernig getur þú sparað með Hopp Spot?

Með því að leggja hjá HoppSpot svæði færð þú afslátt af ferðinni og hjálpar til við að halda borginni snyrtilegri.

Ef þú hefur notað Hopp rafskútu hefurðu líklega tekið eftir litlu bláu % merkjunum á kortinu í appinu. Þau tákna svokölluð HoppSpot sem eru skilgreindir staði þar sem notendur geta lagt rafskútum sínum. Með því að leggja hjá HoppSpot svæði færð þú afslátt af ferðinni og hjálpar til við að halda borginni snyrtilegri.

Hvað eru Hopp spott?

Hopp spott eru valin í samstarfi við sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir og mynda eins konar „heimavelli“ Hopp skútunnar. Þar eru farartækin geymd á öruggum stað, tilbúin fyrir næsta notanda. Þegar þú leggur á Hopp spotti færðu afslátt af ferðinni!

Hvar finn ég Hopp spott?

Hopp spott eru sýnd á kortinu í appinu. Með því að smella á % merkið sérðu hversu mikinn afslátt þú færð fyrir að leggja þar. Leggðu skútunni á Hopp spotti, taktu mynd til staðfestingar! Þannig sparar þú af ferðinni þinni, ferðast á ábyrgan hátt og hjálpar til við að gera höfuðborgina fallegri og öruggari fyrir alla vegfarendur.

Read more

07.11.2025Mobility

Það er betra að deila en að eiga

Að deila er því ekki bara þægilegt heldur er það er skref í átt að sjálfbærari framtíð þar sem við nýtum borgarrýmið betur á ábyrgan hátt.